{"product_id":"amelia-og-oliver-fara-ut-ad-leika","title":"Amelía og Óliver fara í bústað","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAmelía og Óliver fara í bústað með ömmu og mömmu. Þar hitta þau óvænt tröllið Blæ sem er í heimsókn hjá frænku sinni. Saman fara þau í berjamó og lenda í alls konar ævintýrum í fallegri íslenskri náttúru. Amelía og Óliver er hugljúf saga um vináttu og leikgleði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundar:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/kristin-bjorg-sigurvinsdottir\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\"\u003eKristín Björg Sigurvinsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/sigrun-alda-sigfusdottir\"\u003eSigrún Alda Sigfúsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eMyndhöfundur:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/herborg-arnadottir\"\u003eHerborg Árnadóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHöfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003eAmelía og Óliver\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer ríkulega myndlýst barnabók og í henni eru kennd millilagsorð, þ.e. orð sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mjög mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eMarkmið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHægt er að fræðast meira um bókina og höfunda á\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/ordabrunnur.is\/\"\u003e\u003ci\u003ehttps:\/\/ordabrunnur.is\/\u003c\/i\u003e\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bíumbíum","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67698527011065,"sku":"9789935557629","price":4799.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0414\/4883\/3186\/files\/library-63272647-CB58-4F9A-A7E2-BB7C095B6F0B-L0-001.webp?v=1794610080","url":"https:\/\/biumbium.is\/products\/amelia-og-oliver-fara-ut-ad-leika","provider":"Bíumbíum","version":"1.0","type":"link"}